Tootsie
23.12.2007 02:19:37 / erlaheidrun

hmmmmmmmmmmmmm pæling ;P

Meyja: Sjálfstæði er kynæsandi. Þú ert sterkur og vilt sanna að þú getir hugsað um þig sjálfur. Einmitt þegar allt er komið á hreint, kemur ástin og villir um fyrir þér.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 01:02:29 / erlaheidrun

Já ef allir vissu þetta

 ONE. Give people more than they expect and do it cheerfully.

TWO.
Marry a man/woman you love to talk to. As you get older, their conversational skills will be as important as any other.

THREE.
Don't believe all you hear, spend all you have or sleep all you want.

FOUR.
When you say, 'I love you,' mean it.

FIVE.
When you say, 'I'm sorry,' look the person in the eye.

SIX..
Be engaged at least six months before you get married.

SEVEN.
Believe in love at first sight.

EIGHT.
Never laugh at anyone's dream. People who don't have dreams don't have much.

NINE.
Love deeply and passionately. You might get hurt but it's the only way to live life completely.

TEN.
In d isagre ements, fight fairly. No name calling.

ELEVEN.
Don't judge people by their relatives.

TWELVE.
Talk slowly but think quickly.

THIRTEEN.
When someone asks you a question you don't want to answer, smile and ask, 'Why do you want to know?'

FOURTEEN.
Remember that great love and great achievements involve great risk.

FIFTEEN.
Say 'God bless you' when you hear someone sneeze.

SIXTEEN.
When you lose, don't lose the lesson
.

SEVENTEEN.
Remember the three R's: Respect for self; Respect for others; and Responsibility for all your actions.

EIGHTEEN.
Don't let a little dispute injure a great friendship.

NINETE EN.
When you realize you've made a mistake, take immediate steps to correct it.

TWENTY.
Smile when picking up the phone. The caller will hear it in your voice.

TWENTY-ONE.
Spend some time alone.

A true friend is someone who reaches for your hand and touches your heart.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 08:53:53 / erlaheidrun

Need i say more

I'm holding on your rope,
Got me ten feet off the ground
And I'm hearing what you say but I just can't make a sound
You tell me that you need me
Then you go and cut me down, but wait
You tell me that you're sorry
Didn't think I'd turn around, and say...

that it's too late to apologize, it's too late
I said it's too late to apologize, it's too late

I'd take another chance, take a fall
Take a shot for you
And I need you like a heart needs a beat
But it's nothing new - yeah
I loved you with the a fire red-

Now it's turning blue, and you say...
I'm sorry like an angel
heaven let me think was you
But I'm afraid...

It's too late to apologize, it's too late
I said it's too late to apologize, it's too late whoaa ohhh...

It's too late to apologize, it's too late
I said it's too late to apologize, it's too late
I said it's too late to apologize, yeah-
I said it's too late to apologize, yeah-
I'm holding on your rope, got me ten feet... off the ground...

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 22:55:05 / erlaheidrun

Ferð til Madrid að baki.

Jæja þá er eftir 17 ára bindindi þá hef ég lagt land undir fór og skellti mér til Madrid um síðustu helgi,, þannig ég hef brotið þann múr að hafa ekki ferðast lengra suður á bóginn nema bara til Danmerkur. Voða stolt af sjálfri mér :D ekki það þetta var bara stutt stopp reyndar frá fimmtudegi til mánudags. En þetta var bara gaman

Búin að skella inn nokkrum myndum og á eftir að setja fleiri,, 

 

Bless í bili og góða nótt

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 14:31:18 / erlaheidrun

Stjörnuspá dagsins,,,

Meyja: Svona veistu hvort einhver hefur algerlega stolið hjarta þínu: Þér tekst ekki að einbeta þér, svífur um með bros á vör og heldur að þú sért betri en aðrir. :D:D:D:D:D

 

He he týpísk meyja :D 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 22:49:30 / erlaheidrun

Jæja loksins nýjar fréttir af mér :P

Jæja nú er kominn tími að skrifa eitthvað viturlegt um sjálfan mig,,, en vá veit nú ekki hvað það ætti að vera :$ . En já það er allt of langt síðan síðasta færsla var og fólk aðeins farið að ýta á mig :^) .

Hmmm já þetta er sko búið að vera yndislegt sumar og held ég hafi nú bara sjaldan upplifað eins skemmtilegan tíma. Vá það var sko kominn tími að finna sjálfan sig, og ég er svona þokkalega sátt bara ;) .

Já svona til að gera langa sögu stutta þá var þetta eitthvernveginn svona: Eftir skólann þá tók ég smá frí en ekki mikið,, kíkti svo aðeins til Íslands á Írska daga að sjálfsögðu og líka mína dásamlegu systir sem var kasólétt og var ég svona rétt að vona að hún mundi nú skjóta krakkanum út úr sér áður en ég færi úr... hmmm en nei nei ég fer heim á mánudegi og hún á barnið á föstudeginum eftir.... talandi um típýskt.. En átti samt þennan dásamlega litla dreng sem ég kom nú og sá núna í ágúst.. bara æði.

Ég sem sagt var komin með vinnu, eftir 3 vikna frí frá skólanum í skartgripabúð á strikinu,, jú jú allt gott og blessað við það ,, kallinn að kenna mér að gera við skartgripi og svoleiðis, en eftir einn og hálfan mánuð í að vinna 6 daga í viku frá 10 til 18 og 19 á föstudögum á skítalaunum,, átti þar af leiðandi ekkert annað líf,, og það er ástæðan fyrir því að ég hef ekki skrifað,, að ég bara hætti.. Já og lái mér það hver sem er,, en ég er svaka sátt núna og átti síðasta vinnudaginn minn í síðustu viku ,, sem sagt daginn fyrir afmælið mitt þannig þetta var bara hin besta gjöf :D

Þannig að nú er mín bara aðeins að slappa af, en er samt enn að gera neglur,, og vinna á diskótekinu. Ætla aðeins að fá mitt sumarfrí núna,, og já haldiði ekki að daman sé að skella sér til Madrid í næstu viku,, úff það verður æði, hótel með sundlaug og alles, bara gjeggjað :D . Verð reyndar bara þarna frá fimmtudegi fram á mánudag,, og er að fara með einni stelpu úr vinnunni á tískusýningu hjá frænda hennar,, voða fínt,, ætla sko að sleikja sólina í leiðinni 8) en já það er um 28 stiga hiti þar núna  nanannanananaaa ;)

 

jæja ekki meira frá mér í bili,,, en ég skal koma með meira fljótlega

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 19:39:23 / erlaheidrun

Skólinn búinn og bara nammi fram undan

Jæja þá er skólinn búinn ,,,, veit ekki alveg hvort ég á að hlæja eða gráta :cry: ,, þó þetta hafi verið skóli þá var bara ótrúlega gaman og skemmtilegt að kynnast nýju fólki þarna já og nýjum hlutum og kem ég pottþétt til með að sakna þess. Já og líka vakna svona snemma og sjá alla nýpússuðu nammistrákana :^) á morgnanna bíða eftir lestinni á norreportstation 8) he he bara gaman af því, var alveg þess virði að rífa sig fram úr kl. 6:50 á morgnanna ;).

En já mér gekk bara vel í skólanum og fékk góðar einkunnir,, og þegar ég verð búin að finna hleðslutækið af myndavélinni minni þá ætla ég að setja inn myndir af verkefnunum sem við höfum verið að gera í skólanum. Vonum að það fynnist fljótlega :evil: .

Já annars er allt gott að frétta af mér,, hendin virðist vera komast í samt lag aftur :D bara gömlu góðu verkirnir :( en ekkert meira og vonum bara að það haldist svona. Það er búið að vera steik sól hérna undanfarnar vikur en samt smá pása núna og er búið að ganga á með þvílíkri rigningu og þrumur og eldingar sem fylgja með í kjölfarið. En ég náði sem sagt að fara á ströndina og skella mér í sjóinn sem var nú ótrúlega ekkert kaldur en já maður hefur nú ekki mikið að miða við þar sem maður hefur aðeins dýft stórutánni í sjóinn eftir gönguferð á langasandi.. BRRRRRRR það er kallt .. Svo fór mín í útisundlaug dana sem er nú bara hérna í bakgarðinum hjá mér ;) liggur við og það var nú bara 23 gráðu heitur sjórinn voða fínt.

Svo er bara spurning hvað á að gera í sumarfríinu,, ég er reyndar að bíða eftir því að hringja í einn út af vinnu í búð á strikinu, sem sagt sem selur skartgripi, er búin að fara einu sinni að tala við hann og honum leist bara vel á mig þannig ég á að tala við hann aftur á mánudaginn næsta,, þannig bara allir að krossleggja fingur og vona það besta :haha: , en ef ég fæ þetta þá kemur það til með að auðvelda mér að fá samning hérna úti.

Ég er nú reyndar komin með vinnu, en það er bara svona smá helgarvinna á næturklúbb,, svo sem ekkert merkilegt þannig, er að vinna í fatahenginu og þetta gefur smá pening. Svo já lendir maður í að hitta skemmtilegt fólk í leiðinni, og reyndar fullu líka,, en það er bara gaman af því,, gaman að sjá dani skemmta sér svoldið öðruvísi menning heldur en heima. Þarna fara allir uppréttir út,, he he eða svona flestir og engin svona drykkjulæti eins og tíðkast heima :$ .

En já það verður nóg að gera næstu daga hjá mér,, neglurnar byrjaðar á fullu, og svo er Malmo á föstudaginn,,, mjög snemma,,, en ég og Þórunn ætlum sem sagt að gerast danskir túristar í svíþjóð og reyna kynnast sænskri menningu :haha: .. Já og svo er það sko aðaldagskrá mánaðarins en það eru tónleikarnir með Justin Timberlake á laugardaginn.. úff hvað þá eftir að vera gaman,, hlakka ekkert smá til.. Þeir eru sem sagt í Parken og er planið að fara út að borða fyrst og svo bara já djamm fram á rauða nótt,, verður nóg að gera víst þennan dag þar sem er víst St. hans dagur eða eitthvað hérna í danmörku,, og ég sem hélt að Íslendingar væru þau einu skrýtnu með nornir, álfa og tröll.. En nei nei danir eru víst ekkert skárri, það eru sem sagt brennur hér og þar um danmörku en í gamla daga var sem sagt hefð fyrir því að brenna nornir á báli á þessum degi.. En jæja sel það ekki dýrara en ég keypti það,,, þessu var allavega logið að mér :$

Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra núna,

ætla reyna líka setja inn fleiri myndir þannig vonum að það komi fljótlega..

Bara bæjó á meðan.. æji skelli einni mynd af okkur gellunum á djamminu um daginn,, sem sagt ég, örk og systir hennar hún Elísabet


 

 

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 23:01:45 / erlaheidrun

Hiti og aftur hiti

Þar sem búið er að vera svoldið mikið gott veður hérna úti þá er afsakanlegt að það kemur ekki færsla fyrr en núna 8) er bara ekki búin að vera mikið heima undanfarið.

En já smá fréttir af kellu,,, hmmmm sko tvær vikur eftir að skólanum og svo tekur bara sæla við,, í smá tíma að minnsta kosti. Skólinn gengur bara vel eða þannig var reyndar að klára eitt verkefni í dag sem gekk EKKI vel og ég náði ekki að klára í fyrsta skipti verkefni sem sett var fyrir . :cry: En vissi það svo sem þegar ég mætti í morgun að ég mundi ekki ná þessu,, bömmer en svona er þetta.

Fór reyndar í heimsókn til Þórunnar í gær þar sem hún býr í svona hermanna kollegi ef má kalla,, voða fyndin lítil hús svona í miðri kaupmannahöfn,, en kærasti hennar er sem sagt í skóla hjá hernum. Endaði þar í matarboði hjá nágranna þeirra og var setið að sumbli fram á kvöld,, kræst við hættum að telja þegar búið var að opna 5tu rauðvínsflöskuna,, en vá þetta var bara gaman. Reyndar var heimferðin ekkert skemmtileg þar sem mín var orðin frekar tipsý á því og endaði með því að villast aðeins í metróinu,,, :^) ekki það metroið gekk ekki eins og venjulega og tók þessi heimferð um 45 min sem hefði annars átt að taka 15min.. En vá ég held ég hafi farið með heilan tiggjópakka í morgun svo að ég mundi nú ekki anga eins og bruggtunna í skólanum :$:$.

Veðrið er búið að vera alveg dásamlegt hérna undanfarið bara þvílíkur hiti þannig það lekur af manni bókstaflega,, eins og ég segi hver ÞARF sólarlönd þegar verðrið er svona hérna. Alveg ótrúlegt. Reyndar vá,, þar sem svona mikill hiti hefur verið þá fer alltaf stað þarna uppi þegar fer að rigna. Þá meina ég sko bombur,, alveg ótrúlegt,, vaknaði á aðfaranótt þriðjudagsins kl. 3 um nóttina en þá rankaði ég sem sagt við mér inn á stofugólfi grútmygluð og skildi ekker í því hvað var um að vera. En já þá saknaði ég þess virkilega að hafa ekki einhvern kúripoka við hliðina á mér til að hjúfra mér upp að þar sem ég er klikkað veðurhrædd. Og mér leist nú ekkert á þetta þegar íbúðin gjörsamlega lýstist upp og þvílíkar bombur sem voru fyrir utan,, hef bara aldrei upplifað annað eins. Og rigningin sem fylgdi í kjölfarið var bara þvílík líka 8|8| ekki svo sem fínt fyrir gróðurinn að fá svona skúri stundum :haha:
 

En ætla láta hérna mynd frá bryggjunni fylgja með en þettta er sem sagt ég og Örk að sóla okkur á bryggjunnu


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 00:37:27 / erlaheidrun

Bara steik í köben.

Jæja er ekki spurning um að koma með eitthvað fróðlegt hérna inn,,, jæja en allavega er búið að vera algjör steik hérna í Kongens köben gæti ekki verið betra,, meira að segja íslenska sumarið verður ekki svona gott.. Hlakka bara til sumarsins hérna ef það verður eins og í fyrra þá verður svona um 25 stiga hiti flesta daga,, já ekki að grínast get meira að segja sagt það fór út á föstudaginn og það var 14 stiga hiti um kl. 22 .. bara æði :D .

Já annars er ekki mikið að frétta hérna af mér bara búið að vera nóg að gera í skólanum, er reyndar að klára næstsíðasta bekkinn þannig á miðvikudaginn í næstu viku erum við að byrja á síðasta sprettinum en það eru sem sagt 5 vikur sem eru þá eftir.

Já svo er allt við það sama bara sól á bryggjunni legið í leti í sólbaði og haft það næs,,, hmmmm ætla nú samt ekkert að fara taka fram djammið sem er búið að vera síðustu helgar, bara gaman :haha:

en hef því miður ekki getað komið þessum myndum sem ég hafði af sálarballinu inn á netið en ætla láta nokkrar fylgja af okkur liggja í sólinni á bryggjunni.

bæjó


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 18:04:40 / erlaheidrun

Er ekki Vogur næsta stoppistöð ,, pæling

Jæja þá er þessi vika að vera búin og næsta að banka,,, en já það er sko búið að vera nóg að gera og það er eiginlega spurning um að fara panta pláss á Vogi fljótlega ég sver það :S ..

En já það var sem sagt djamm um síðustu helgi bæði föstudag og laugardag,, kom reyndar snemma heim á föstudeginum en laugardagurinn var heldur verri en þá var skellt sér í partý hjá Íslendingum og var ekki komið heim fyrr en kl. 6 um morguninn,, já og þessu fylgdi þessi skemmtilega þynnka eða þannig 8) ..

Eins og maður hefði nú ekki orðið nógu slappur en nei nei það var náttúrulega skellt sér á Sálar og Stuðmannaballið hérna og Vá þvílíkt fjör,,, langt síðan maður hefur dansað svona mikið,, já bara voða gaman,, ótúlega furðulegt líka að skella sér svona á skemmtun hérna úti og það eru BARA Íslendingar.. En þetta var bara gaman, ég og Valdís græddum meira að segja frímiða í matinn svona á síðustu stundu þannig það var bara tekið scverið beint niðrí bæ að sækja miðana og já tala nú ekki um áfengið sem fékk að fara fljótt niður líka þar sem við höfðum nú allt í einu ekki tíma til að sötra það í rólegheitum :$:$ en já mæli bara með svona djammi,, en samt ekki deginum á eftir,, úff held ég hafi ennþá verið þunn á föstudeginum.

Svo var það sko föstudagurinn,,,en þá hittumst við stelpurnar heima hjá Örk og heltum í okkur nokkrum öllurum áður en já við fórum niðrí bæ og já þá endaði kvöldið aftur að vera ekki komin heim fyrr en kl. 6 en vá hvað ég var orðin þreytt,,, var virkilega farin að sjá rúmið í hyllingum 8)

Þannig enginn hefði getað fengið mig til að fá mér einn áfengissopa í gær en skellti mér aðeins heim til strákanna þar sem Erna og Örk voru en já þeir voru ennþá að sötra,, Vá hefði ekki meikað það en var samt ekki komin heim fyrr en kl. 1 og var þá þokkalega búin á því. Held líka að þeim hafi ekkert litist á þetta hvað ég geispaði mikið, voru farin að sjá hvað ég fékk mér að borða í fyrradag 8| sver það,,, en svona er þetta er það ekki þannig dont do the crime if you cant do the time, eða eitthvað á þá leið,, já maður getur víst sjálfum sér um kennt..:haha:

En já stefni bara á rólega næstu viku 8)8) og reyni að láta það rætast, en já er líka að fá dótið mitt á þriðjudaginn,, og hlakka ekkert smá til,, en já óska hér með eftir burðarfólki :haha: ;)

jæja ætla ekki að láta þetta vera lengra,, reyni kannski að setja inn einhverjar myndir frá Danaveldi,, :D

Kannski bara svona eina hérna en þetta er séð út um gluggann hjá mér einn sólardaginn, reyndar bara seinnipartinn,, en já held það hafi verið um 18 stiga hiti þennan dag,, enjoy  

Egilsgata 

Until later ;)

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 11:33:31 / erlaheidrun

Stjörnuspár og djamm ;)

Stjörnuspá dagsins á mjög vel við núna

 

Hefði ekki getað orðað þetta betur sjálf 8)8)8)8)

 

 Meyja: Að velta fyrir sér ráðgátu sambandsins getur verið hugarleikfimi, sem reyndar getur breyst í skrímsli sem étur upp geðheilsuna. Láttu þetta eiga sig.

 

Nákvæmlega

 

En já party í kveld,,,  bara skál í botn 

 

En já látum þessi vitru orð duga í dag,, verð víst að fara hafa mig til 

fyrir Stuðmenn og Sálina..  

 Cheers 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 11:41:11 / erlaheidrun

Íslandsferð og páskar.

Jæja þá er maður kominn aftur heim eftir ferð til Íslands um páskana. En allt gekk bara ágætlega nema hvað ég náði mér í þetta fína íslenska kvef :evil: ,,,, úff það er ekki að spyrja að því.

En ferðin byrjaði þannig að það var 2 tíma seinkun á vélinni á leiðinni til Íslands,, dásamlegir þessir danir, en þá tóku þeir upp á því að fá sér smá pásu þannig enginn var til að afhlaða vélina og hlaða hana aftur. Kræst ekki alveg það sem maður nennir að bíða í flugvél í einhverja klukkutíma 8) .

Það var síðan æðislegt að koma heim til Evu systir og fjölskyldu hennar,, fá að knúsa alla, priceless :D en þetta var alveg dásamlegt.

En já ég og Gummi náðum að skipta öllu dótinu og það gekk ágætlega, en gott að vera búin að þessu. Skrýtið samt að eiga núna ekkert dót þannig heima á Íslandi,, fynnst vera eitthvað svo tómlegt,, en jæja allt dótið fór víst í siglingu í gær og verður hér á svæðinu eftir svona eina og hálfa viku. UMMMMMMMM get ekki beðið,, verður kannski aðeins heimilislegra þá þegar maður er kominn með sitt persónulega dót,, en vá hvað ég hef tekið agalega lítið með mér þegar ég flutti út,, sá hvað mig vantaði mikið núna.

En já nú eru sko fjárútlát í gangi úff,, Gylfi að taka rúmið og sjónvarpið þannig ég þarf að fjárfesta í nýju dóti :cry: verst er að manni langar alltaf í svo flott en þá auðvitað er það svo dýrt og ómg ég náttúrulega nískasta manneskja í heimi liggur við :S en já ætli maður verði ekki að bíta í það súra og fara þennan svokallaða gullna meðalveg :lol: .

En já er sem sagt líka byrjuð í skólanum, og gengur bara allt ágætlega nema ég er búin að sjá það að ég er ekki alveg orðin nógu góð í hendinni, verklega alveg að fara með mig :cry: . En núna er þetta verkefnið að vera búið á morgun sem betur fer og þá tekur aðeins léttara við.

En já búin að setja inn nokkrar myndir af djamminu á Íslandi, en stelpur þetta var bara gaman þó svo við komumst bara tvisvar :D og enginn á "Dásamlegu Mörkinni" nema við að dansa eins og fávitar 8) .

En já svo auðvitað myndir af fjölskyldunni líka

en bæjó í bili,, ætla fara njóta sólarinnar í Köben en já það er víst spáð 20 stiga hita hérna um helgina :haha: :haha: 8) 8) verður sko bara æði.

Ciao


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 16:16:38 / erlaheidrun

Kjúklingahendi dauðans

Jæja þá er maður komin með kjúklingahendi eina ferðina enn úff,,, verður ekki mikið eftir að henni ef þetta heldur svona áfram næstu árin. Nei takk held ég reyni frekar að stefna á það að vera gipslaus næstu áratugina 8) og láta þetta nægja í bili. En já ég sem sagt losnaði við gipsið á síðasta föstudag og gekk allt vel :D allt lítur mjög vel út og sjúkraþjálfarinn bara leist vel á þetta nú þarf ég bara vera dugleg að þjálfa mig upp sjálf :S . Fékk reyndar smá sjokk þegar gipsið var tekið af því höndin ennþá marin og blá... já og ekki neitt neitt orðin, en það mátti greinilega sjá hvar brotin hafði verið því ég er enn marin á þeim stað :cry: .

En já svo er það skólinn á morgun, úff,,,, ætla bara að vona ég geti notað hendina eitthvað því hún er eins og einn staur ennþá get lítið beygt hana, en er ekki bara best þá að nota íslensku leiðina bara bíta á jaxlinn og láta sig hafa það. Þetta er nú líka bara ein vika svo páskafrí, þannig ekki svo slæmt,,, svo bara Ísland here I come :D Verst að ég verð að skilja örugglega sólgleraugun eftir í Danmörkinni þar sem mér skilst að veðrið heima er ekki búið að vera upp á sitt besta, ja miðað við hérna þar sem er bara búið að vera sól og blíða síðustu daga 8) bara æði og það í Mars.

Svo var skellt sér beint í að hafa matarboð fyrir þessar elskur í gær og heppnaðist allt bara voða vel. Mikið étið og já svona passlega drukkið en Úff.... ekki frá því að það sé nú bara smá þynnka eftir gærkvöldið 8) en alveg þess virði, bara gaman að skemmta sér með þessum elskum ;) .

Jæja læt þetta duga í bili,

bæjó


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 13:41:17 / erlaheidrun

Íslandsferð.....

Jæja þá er ég búin að panta mér ferð til Íslands um páskana, og lendir það auðvitað á aumingja Evu að sitja uppi með litlu systur :S,, .. En ef hún saknar mín jafn mikið og ég hennar þá á hún ekki eftir að henda mér út,, vona ég ,, he he verð víst að taka mið af því að hún sé með óléttuhormónin á fullu :lol: .

En já stelpan á leiðinni þann 30 mars og verður í hvorki meira né minna en 9 daga, vá en það verður skrýtið að koma til baka. Hef það skemmtilega verkefni að ganga frá öllu dótinu okkar Gumma, já verður svona end of an era. En já það verða bara nýjir já og öðruvísi tímar framundan. En auglýsi hérmeð ef einhver vill voða stórt og flott hjónarúm þá er ég að spá í að selja rúmið gegn sanngjörnu verði en það er minnir mig í stærðinni 190x220 svona springair never turn voða flott.

Já þessi helgi bara búin að vera í afslöppun, voða næs fór reyndar í mat til Elvu og Gumma í gær, bara takk fyrir mig kjúllinn hjá ykkur er alltaf góður ;) . Annars bara leti dagur í dag, ekki svo sem mikil stórræði sem ég get gert svona eins og fatlafólið sem ég er 8) en allt tekur mig helmingi lengri tíma en venjulega, úff. En já er samt að losna við þetta bara næsta föstudag þannig get látið mig hlakka til þess :D jebb get ekki beðið. Þá get ég farið að sofa vonandi eitthvað líka :( já er búin að sofa vægast sagt mjög illa veit ekki hvort það sé út af gipsinu eða bara langvarandi kúripokaleysi 8) en já það kemur í ljós um næstu helgi ;) .

En já svo er það skólinn en hann byrjar á næsta mánudag sem sagt 26. mars get bara ekki beðið :D fer reyndar í annan bekk þannig ég verð ekki með dúllunum mínum í bekk, en jæja það verður þá bara að reyna meira á mína annars "frábæru" dönskukunnáttu :haha: , en já á eftir að sakna þess að geta ekki bara spjallað á íslensku... men vi ses i pause ;)

Jæja ætla ekki að þreyta ykkur meira, hlakka bara voða til að koma á klakann, verður bara gaman :D

Og Thelma mín Bara RISAKNÚS TIL ÞÍN INNILEGAR HAMINGJUÓSKIR MEÐ AFMÆLIÐ, luV u 4 ever

Bæjó,

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 15:23:08 / erlaheidrun

Sallý komin og farin

Jæja nú er stelpan orðin ein á heimilinu aftur :( en já Sallý yfirgaf mig í gær :cry: , en já svona fyrir þá sem eru að spá þá endilega ef þið viljið kíkja í heimsókn, það er alllltaf plásss ;) .

En já Sallý mín bara takk fyrir æðislega helgi, luv u . Já helgin var bara fín í alla staði, byrjuðum náttlega á því að koma stelpunni hennar Sallýjar í pössun hjá vinkonu sinni svo var bara bærinn málaður rauður allsstaðar. Ég varð auðvitað að sýna Sallý alla sætu strákana í Danaveldi, og já það er ekki erfitt að finna þá ;) enda var djammað fram undir morgun báða dagana, úffff hélt maður væri orðinn of gamall fyrir þetta en nei stelpurnar bara duglegar.

Fórum á svaka stóran dansklúbb, þar var einhver rosa frægur DJ sem átti að spila og við spáðum ekkert í því, vorum bara að koma að skemmta okkur. Svo töluðum við nokkra stráka þarna og þeir héldu við værum eitthvað klikkaðar að vita ekki hver þetta væri, he he þarna kom túristinn upp í manni eða bara kannski aldurinn :S,,, nei nei svo þegar hann byrjaði að spila þá náttlega vissum við alveg hver þetta var :^) algjörar ljóskur á ferð hí hí, en hann er voða vinsæll á Íslandi líka.

Já svo var vaknað á hádegi daginn eftir úff,,, vorum svoldið myglaðar enda ekki komnar í rúmið fyrr en kl. 07 um morguninn, þá lá leið niður á strik já eins og sönnum Íslendingi sæmir og skellt sér í H&M ;) .

Svo fórum við á mesta sílíkonstað í kaupmannahöfn á laugardagskvöldinu, kræst allar gellurnar mað sílikon hér og þar, úff,,,já við fengum þvílíka minnimáttarkennd við hliðina á öllum píunum þarna. En bara gaman verst hvað þetta helv.... gips flækist fyrir manni þannig maður getur ekki einu sinni dansað.

En já bara góð helgi búin,, jæja búin að setja inn nokkrar myndir þannig endilega kíkið.

bæjó


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Ni�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?°urtalning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1047 dögum
RSS tengill